Minnst 94 fórust og 50 slösuðust þegar mikil sprenging varð skömmu eftir að olíubíll lenti í árekstri í norðurhluta Nígeríu í gær.
Mörg fórnarlambanna höfðu safnast í kringum bílinn til að sækja sér eldsneyti sem hafði lekið á veginn eftir áreksturinn.
„Við höfum staðfest að 94 séu látnir og um 50 særðir,“ sagði Lawani Shiisu Adam, talsmaður lögreglunnar, við AFP-fréttaveituna.