Aðgerðasinninn Paul Watson hefur beðið Emmanuel Macron Frakklandsforseta um pólitískt hæli.
Þetta kom fram á blaðamannafundi umhverfissamtakanna Sea Shepherd í París í dag.
Watson var handtekinn í Nuuk á Grænlandi í júlí á grundvelli alþjóðlegrar handtökuskipunar sem alþjóðalögreglan Interpol gaf út að beiðni Japana. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan á meðan dönsk stjórnvöld hafa fjallað um framsalskröfu Japana.
Bréf með beiðninni var sent forsetanum fyrir nokkrum dögum, en Watson bjó í Frakklandi áður en hann var handtekinn.
Francois Zimeray, franskur lögmaður Watson, sagði á blaðamannafundinum að Watson hefði einungis vakið athygli á „ólöglegum“ hvalveiðum Japana.
Handtökutilskipun Japana á hendur Watson var gefin út árið 2010 eftir að Watson reyndi að koma í veg fyrir hvalveiðar japanskra veiðimanna á Suðurheimskautinu.
Watson „mun aldrei fá sanngjörn réttarhöld“ ef hann verður framseldur sagði lögmaðurinn.
„Ef hann verður fangelsaður í Japan mun hann aldrei komast út á lífi.“