Ungbarn lést þegar yfirfullur bátur með flóttamenn á leið til Bretlands sökk í Ermarsundinu í gærkvöldi.
Báturinn var skammt frá franska bænum Wissant í Norður-Frakklandi þegar slysið varð.
Viðbragðsaðilum tókst að bjarga 65 en barnið fannst meðvitundalaust og var úrskurðað látið.
Alls hafa nú 52 látið lífið í Ermarsundinu er þeir reyna að komast yfir til Bretlands.
Í síðasta mánuði fórust tólf er þeir reyndu að komast yfir til Bretlands, þar af voru sex börn. Fyrr í þessum mánuði fórust tveggja ára strákur og þrír fullorðnir.