17 látnir í árás: Yngsta fórnarlambið 11 mánaða

Þrír menn kljúfa yfir rústir í skólanum.
Þrír menn kljúfa yfir rústir í skólanum. AFP

Minnst 17 manns létust í árás Ísraelsmanna á skólabyggingu á Gasasvæðinu. Þrettán hinna látnu voru börn og yngsta fórnarlambið var 11 mánaða. Minnst 32 eru særðir.

Fólk hafði dvalið í skólanum og leitað skjóls í Nuseirat-búðunum sem þar hafði verið komið upp til bráðabirgða, en ekkert skólastarf hefur verið á Gasa síðastliðið ár.

Myndir frá eftirmálum árásarinnar sýna fólk fjarlægja lík úr rústum skólans. Al Jazeera og Sky News greindu frá.

Níu hinna látnu voru börn og yngsta fórnarlambið var aðeins …
Níu hinna látnu voru börn og yngsta fórnarlambið var aðeins 11 mánaða. AFP

Ekki dregið úr árásum

Ísraelsher kveðst hafa skotið á stjórnstöð Hamas í húsi sem hafi áður verið skóli. Höfðu margir bundið vonir við að Ísrael myndi draga úr árásum sínum á Gasa eftir að Yahya Sinwar, leiðtogi stjórnmálaarms Hamas, var felldur í síðustu viku.

Svo virðist þó ekki vera en minnst 770 hafa látist og 1.000 særst í árásum Ísraels frá því að árásir hófust á norðurhluta Gasa fyrir 20 dögum.

Um 90% íbúa á Gasa, sem telja um 2,3 milljónir, hafa þurft að flýja heimili sín frá því að árásir Ísraela hófust.

Opinberar tölur kveða á um að minnst 42.847 Palestínumenn hafi verið drepnir frá því í fyrra og minnst 100.544 særðir. Eru þá ekki meðtaldir þeir sem eru látnir undir rústum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka