Íranski herinn segir að fjórir hermenn hafi látist vegna árása Ísraelshers.
Fyrr í dag greindi herinn frá því að tveir hermenn hefðu látist í árásinni.
Ísraelsher hóf eldflaugaárás á Íran um miðnætti í nótt. Írönsk stjórnvöld sögðu fyrr í dag að árásin hefði valdið takmörkuðum skaða.
Árásin beindist að herstöðvum í vestur- og suðvesturhluta Teheran, höfuðborgar Íran.