Masoud Pezeshkian, forseti Írans, segir að Íran leitist ekki eftir að fara í stríð við Ísrael en að Íran væri tilbúið að svara árásum Ísraels á herstöðvar landsins.
Í gær gerði Ísraelsher eldflaugaárás á herstöðvar Írans í vestur- og suðvesturhluta Teheran, höfuðborgar Íran. Fjórir hermenn létust í árásinni en Ísrael var með þessu að svara árásum Írans frá 1. október.
„Við leitumst ekki eftir að fara í stríð en við munum verja réttindi þjóðar okkar og lands,“ sagði Pezeshkian á fundi með ráðamönnum og bætti við að Íranar „muni bregðast við árásunum sem síonistastjórnin hefur gert“.