Tala látinna hækkar enn vegna flóðanna

Fólk reynir að hreinsa götur í Paiporta í Valencia eftir …
Fólk reynir að hreinsa götur í Paiporta í Valencia eftir flóðin. AFP/Jose Jordan

Staðfest var í gær að 158 manns hið minnsta hefðu farist í flóðunum miklu sem nú skekja austurhluta Spánar. Eru flóðin þar með þau skæðustu í sögu Spánar, en 1973 fórust 150 manns í flóðum.

Leit og björgun stendur enn yfir á flóðasvæðunum og hefur herinn veitt björgunarmönnum liðsinni sitt, en aðstæður eru erfiðar vegna leðju og braks sem fylgt hefur flóðunum. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert