Fagnar sigri Sandu og vill sameinaða Evrópu

Selenskí er hann var staddur á Íslandi.
Selenskí er hann var staddur á Íslandi. AFP/Halldór Kolbeins

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti óskaði Maiu Sandu til hamingju með sigurinn í forsetakosningunum í Moldóvu en andstæðingur hennar naut stuðnings stjórnmálaflokks sem er hliðhollur Rússum.

Moldóva var áður hluti af Sovétríkjunum sálugu.

„Valið er skýrt hjá Moldóvum – þeir völdu leiðina í átt að efnahagslegum vexti og félagslegum stöðugleika,“ sagði Selenskí, sem hét því að styrkja tengslin á milli ríkjanna.

Maia Sandu fagnar sigrinum í kosningunum.
Maia Sandu fagnar sigrinum í kosningunum. AFP/Daniel Mihailescu

Bæði Moldóva og Úkraína vilja ganga til liðs við Evrópusambandið í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu árið 2022.

„Aðeins alvöruöryggi og friðsamleg sameinuð Evrópa getur tryggt hverri manneskju og hverri fjölskyldu sjálfstraustið til að horfast í augu við morgundaginn með von og vissu í hjarta,“ bætti Selenskí við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert