Svona verður endaspretturinn

Bandaríkjamenn ganga til kosninga á morgun. Þegar hafa þó fleiri …
Bandaríkjamenn ganga til kosninga á morgun. Þegar hafa þó fleiri en 78 milljónir atkvæða verið greidd. AFP

Endasprettur kosningabaráttunnar í Bandaríkjunum er nú fyrir höndum. Hann er ólíkur hjá forsetaframbjóðendunum tveimur en þó er eitt ríki á lista beggja.

Donald Trump, frambjóðandi repúblikana, lofaði í gær yfirburðasigri og að þar með ætti hann afturkvæmt í Hvíta húsið. Kamala Harris, frambjóðandi demókrata, sagði á sama tíma að skriðþunginn væri hennar megin, en þar með yrði hún fyrsti kvenforseti í nærri 250 ára sögu landsins.

Skoðanakannanir gefa þó flestar hvorugt til kynna. Ef marka má þær þá er ógurlega mjótt á munum, sama hvort litið sé til landsins alls eða sveifluríkjanna sjö þar sem talið er að örlögin verði ráðin.

Harris ver öllum deginum í Pennsylvaníu

Pennsylvanía er þar fremst í flokki, með flesta kjörmenn sveifluríkjanna og tvísýnustu úrslitin. Bæði munu þau enda heimsækja ríkið í dag.

Samkvæmt dagskrá Harris mun hún verja þar öllum deginum og ljúka honum á feiknastórum fjöldafundi í stórborginni Philadelphiu, þar sem Lady Gaga kemur fram meðal annarra.

Til marks um hversu mikilvæg Pennsylvanía þykir í baráttunni þá munu Trump og Harris bæði halda fjöldafundi í iðnaðarborginni Pittsburgh.

Hjá Trump hefst dagurinn aftur á móti í Norður-Karólínu, áður en hann fer til Pennsylvaníu og lýkur deginum í Grand Rapids í Michigan.

Kamala Harris á fjöldafundi 1. nóvember.
Kamala Harris á fjöldafundi 1. nóvember. AFP

Stefndi allt í mikinn ósigur

Fulltrúar beggja framboða hafa sagt mikla kjörsókn utan kjörfundar gefa sér von. Alls hafa fleiri en 78 milljónir manna þegar greitt atkvæði, en það er um helmingur allra greiddra atkvæða í síðustu forsetakosningum árið 2020.

Trump hefur á undanförnum dögum orðið enn óheflaðri í orðræðu sinni þar sem hann sækist eftir sínu öðru kjörtímabili, en það myndi gera hann að fyrsta dæmda afbrotamanninum til að sitja á stóli forseta. Sömuleiðis yrði hann sá elsti í sögu landsins til að hljóta kjör til setunnar.

Harris hefur náð að gera kosningarnar tvísýnar aðeins nokkrum mánuðum eftir að forsetinn Joe Biden dró framboð sitt til baka. Samkvæmt skoðanakönnunum á þeim tíma stefndi allt í mikinn ósigur Bidens.

Þungunarrof, innflytjenda- og efnahagsmál

Harris vonast til að réttur kvenna til þungunarrofs, og ásókn repúblikanaflokksins í að skerða hann, verði ofarlega í huga kjósenda sem muni þá greiða henni atkvæði sitt.

Framboð Trumps hefur á sama tíma reynt að beina athyglinni að innflytjenda- og efnahagsmálum.

Trump sjálfur hefur þó að einhverju leyti stolið þeirri athygli með ýmsum ummælum, svo sem með því að kalla pólitíska andstæðinga „óvininn að innan“.

Donald Trump á fjöldafundi með stuðningsmönnum sínum.
Donald Trump á fjöldafundi með stuðningsmönnum sínum. AFP

Allt í lagi ef blaðamenn yrðu skotnir

Á framboðsfundi í gær sagði Trump að það væri sér að meinalausu ef blaðamenn yrðu skotnir.

Þá hafði hann enn á ný uppi staðlausar ásakanir um kosningasvindl og reifaði í blóðugum smáatriðum glæpi sem óskráðir innflytjendur hefðu framið.

„Kamala – þú ert rekin, hypjaðu þig,“ sagði Trump við fagnaðarlæti stuðningsmanna í Macon í Georgíuríki.

Þá sagði forsetinn fyrrverandi að hann hefði ekki átt að yfirgefa Hvíta húsið, sem hann gerði eftir að hann tapaði fyrir Joe Biden í kosningunum árið 2020.

Sá uggur sækir nú sífellt meir að fólki, að hann muni eins og þá neita að viðurkenna ósigur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka