Hátt í 90 enn saknað eftir hamfaraflóðin

Að minnsta kosti 89 manns er enn saknað eftir mannskæð flóð í Valencia-héraði á Spáni  í síðustu viku að sögn yfirvalda á svæðinu.

Að sögn spænskra fjölmiðla hafa 195 krufningar verið gerðar og 133 hafa verið greind en enn á eftir að bera kennsl á 62. 

Enn er 89 manns saknað og gæti einhver þeirra verið meðal þeirra sem enn hefur ekki verið borið kennsl á.

Flestir létu lífið í bænum Paiporta en 60 létu lífið þegar vatnsbylgja streymdi niður Poyo-skurðinn. Alls búa um 30 þúsund manns í bænum.

Yfirvöld í Valencia segja að alls hafi 107 verið handteknir fyrir rán í verslunum og íbúðarhúsum í héraðinu eftir flóðin, þar af 11 á síðustu tveimur sólarhringum.

Frá bænum Paiporta þar sem 60 manns fórust í hamfaraflóðunum …
Frá bænum Paiporta þar sem 60 manns fórust í hamfaraflóðunum í síðustu viku. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert