Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hefur óskað Donald Trump til hamingju með sigurinn í forsetakosningunum.
„Það er von í lofti og nýr morgunn í Bandaríkjunum á nýjan leik!” sagði Johnson, sem er repúblikani, líkt og Trump.
Sjónvarpsstöðin Fox News hefur þegar lýst Trump sem sigurvegara kosninganna.