Ted Cruz heldur sæti sínu í öldungadeildinni

Ted Cruz, öldungadeildarþingmaður Texas.
Ted Cruz, öldungadeildarþingmaður Texas. AFP

Repúblikaninn Ted Cruz lagði demókratann Colin Allred í baráttunni um sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir hönd Texas. 

Þetta sýnir útgönguspá NBC-fréttastofunnar.

Sigurinn kemur ekki mörgum á óvart enda hefur Texas verið á valdi repúblikana í áratugi. Þá er Cruz enginn nýgræðingur en hann hefur setið í tvö kjörtímabil í öldungadeildinni.

Allred veitti þó óvænta mótspyrnu á síðustu vikum. Varði demókratinn milljónum dala í sjónvarpsauglýsingar og markaðsherferðir þar sem hann vakti m.a. athygli á að Cruz styddi bann við þungunarrofi eftir sex vikna meðgöngu. 

Þrátt fyrir það greiddu um 47% kvenna atkvæði með Cruz.

Þá fékk hann mikinn stuðning meðal kjósenda af rómönskum uppruna (e. latino).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert