Donald Trump mun bera sigur úr býtum þegar öll atkvæði verða talin upp úr kjörkössunum í Norður-Karólínu.
Þetta er mat greiningardeildar dagblaðsins New York Times.
Þar með er Trump talinn eiga sigurinn vísan í tveimur af sveifluríkjunum sjö, því þegar hefur innanríkisráðherra Georgíu sagt forskot hans of mikið til að Kamala Harris geti unnið það upp í því ríki.