Kukies sagður nýr fjármálaráðherra

Joerg Kukies.
Joerg Kukies. AFP/Bernd von Jutrczenska

Joerg Kukies, sem er í Sósíaldemókrataflokki Olafs Scholz, kanslara Þýskalands, og náinn samstarfsmaður hans, verður skipaður nýr fjármálaráðherra landsins.

Þetta herma heimildir AFP-fréttatofunnar. 

Scholz rak fjármálaráðherrann Christian Lindner í gær sem varð til þess að þriggja flokka ríkisstjórn hans sprakk.

Friedrich Merz, formaður Kristilegra demókrata sem er í stjórnarandstöðu í Þýskalandi, vill að greidd verði atkvæði um vantrauststillögu gegn Scholz í næstu viku í staðinn fyrir í janúar eins og hann hefur lagt til.

Merz sagði að loknum flokksfundi í Berlín að þriggja flokka ríkisstjórn Scholz hefði mistekist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert