Joe Biden Bandaríkjaforseti mun hitta Donald Trump, verðandi forseta, í Hvíta húsinu á miðvikudag.
Biden hefur heitið friðsamlegum valdaskiptum, en Trump tekur við embætti forseta á ný þann 20. janúar.
Kapparnir munu hittast klukkan 11 að staðartíma í Washington, klukkan 16 að íslenskum tíma.
Trump sigraði bandarísku forsetakosningarnar, sem fóru fram á þriðjudag, eftir harða baráttu við Kamölu Harris varaforseta.