Netanjahú gaf grænt ljós á símboðaárás á Hisbollah

Ísrael hefur ekki viðurkennt að hafa átt þátt í aðgerðinni …
Ísrael hefur ekki viðurkennt að hafa átt þátt í aðgerðinni þar til nú, en tæplega 40 manns létust, m.a. tíu ára stúlka, og 3.000 særðust í árásinni. Á mynd má sjá leifar eins símboðanna sem sprungu í Beirút. Skjáskot/Telegram

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, gaf grænt ljós á símboðaárásina sem gerð var á hin herskáu Hisbollah-samtök í Líbanon í september, þegar hundruð símboða sprungu skyndilega víða um landið.

Hinn 17. september sprungu þúsundir símboða í eigu Hisbollah-liða á sama tíma og vöknuðu grunsemdir strax um að um skipulagða árás væri að ræða.

Tæplega 40 manns létust, m.a. tíu ára stúlka, og 3.000 særðust.

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. AFP/Ohad Zwigenberg

Hisbollah-samtökin, sem njóta stuðnings Írana, sökuðu Ísraelsmenn tafarlaust um verknaðinn en Ísrael hefur ekki viðurkennt að hafa átt aðild að aðgerðinni þar til nú. Næsta dag sprungu síðan talstöðvar Hisbollah-liða einnig.

„Netanjahú staðfesti á sunnudag [í dag] að hann hefði gefið grænt ljós á símboðaárásina í Líbanon,“ segir Omer Dostri, talsmaður ráðherrans, í dag.

Markaði stigmögnun á svæðinu

Árásin markaði upphaf enn frekari stigmögnunar á átökunum milli Hisbollah og Ísraels, og lagði aðgerðin grunn fyrir landhernað Ísraelsmanna í suður Líbanon.

Í rúmt ár hefur Hisbollah staðið í minni háttar hernaðaraðgerðum gegn Ísrael frá því að átökin á Gasaströndinni brutust út. Síðan þá hafa þó átökin stigmagnast.

Að sögn heilbrigðisyfirvalda á Gasa hafa um 44 þúsund manns látið lífið í stríðinu sem hófst 7. október 2023 með hryðjuverkaárás Hamas, sem hnepptu þar 250 manns í gíslingu og drápu um 1.200 manns.

Ættingjar syrgja Fatima Abdallah, tíu ára stúlku, sem lést eftir …
Ættingjar syrgja Fatima Abdallah, tíu ára stúlku, sem lést eftir að símboðarnir sprungu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert