Trump vann líklega öll sveifluríkin

Trump á kosningafundi í Arizona í september.
Trump á kosningafundi í Arizona í september. AFP

Donald Trump sigraði að öllum líkindum í Arizona–ríki, og þar með í öllum sveifluríkjunum sjö í forsetakosningunum. 

Þessu spáðu bandarísku sjónvarpsstöðvarnar CNN og NBC í nótt er um 90% atkvæða hafa verið talin. Trump fær ellefu kjörmenn og tryggir sér því 312 kjörmenn.

Joe Biden Bandaríkjaforseti vann nauman sigur í Arizona í kosningunum árið 2020. 

Hin sveifluríkin sem Trump hefur þegar sigrað í eru Pennsylvanía, Wisconsin, Michigan, Norður-Karólína, Nevada og Georgía. 

Fundar með Biden á miðvikudag 

Repúblikanaflokkurinn er þegar kominn með meirihluta í öldungadeild bandaríska þingsins, en enn á þó eftir að klára atkvæðatalningu um þingsæti í fulltrúadeild þingsins. 

Trump mun funda með Biden í Hvíta húsinu á miðvikudag. Slíkur fundur er hefðbundinn, en Trump bauð Biden ekki upp á slíkan fund árið 2020.

Þá var Trump ekki viðstaddur embættistöku Bidens líkt og hefð er fyrir.

Hvíta húsið hefur þegar gefið út að fyrrverandi forsetar demókrata verða viðstaddir embættistöku Trumps í janúar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert