Tíu nýburar létu lífið í eldsvoða

Tíu nýburar létu lífið. Myndin er úr safni.
Tíu nýburar létu lífið. Myndin er úr safni. AFP/Kobra Akbari

Tíu nýburar létu lífið eftir að eldur kviknaði á nýburadeild indversks sjúkrahúss í gær. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá súrefnisvél.

Eldurinn kviknaði um klukkan 22:30 að staðartíma í gær á Maharani Lakshmibai-sjúkrahúsinu í borginni Jhansi, sem er um 450 kílómetra suður af Nýju Delí, höfuðborg Indlands. 

Sextán nýburum var bjargað, en þeir voru allir í læknimeðferð er eldurinn kviknaði. 

Fyrr á þessu ári létust sex nýbur­ar í elds­voða á barna­spítala í Nýju Delí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka