Heimilar Úkraínu að nota langdrægar eldflaugar

Í mikilli einföldun má lýsa ATACMS–vopnakerfinu á þá leið að …
Í mikilli einföldun má lýsa ATACMS–vopnakerfinu á þá leið að um sé að ræða eina fjögurra metra langa stýriflaug sem hýst er inni í kassalaga skothylki. AFP

Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur heimilað Úkraínumönnum að nota öflugar bandarískar langdrægar eldflaugar, eða ATACMS–vopnakerfið, á rússneskri grundu. 

Þetta herma heimildir CNN

Ákvörðunin er tekin eftir að Rússar sendu nærri 50 þúsund hermenn til Kúrsk–héraðs í suðurhluta Rússlands. Úkraínumenn hófu innrás í héraðið í sumar.

Þúsundir norðurkóreskra hermanna hafa verið sendir til héraðsins.

Biden og ráðgjafar hans hafa áhyggjur af því að þátttaka Norður-Kóreu gæti leitt af sér nýjan fasa í stríðinu.

Þykir afar nákvæmt

Ákvörðunin um að leyfa notkun ATACMS–kerfisins hefur verið til skoðunar í marga mánuði. Sumir bandarískir embættismenn telja að notkun kerfisins muni leiða til stigmögnunar stríðsins.

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti hefur lengi kallað eftir því að fá að nota vopnakerfið á rússneskri grundu til þess að ná skriðþunga í stríðsrekstrinum.

Í mikilli einföldun má lýsa kerfinu á þá leið að um sé að ræða eina fjögurra metra langa stýriflaug sem hýst er inni í kassalaga skothylki. ATACMS–kerfið er margreynt í vopnuðum átökum, þykir afar nákvæmt og er stýrt af bæði GPS og innbyggðri tölvustýringu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert