Ísraelar sagðir hafa skotið á miðborg Beirútar

Ísraelar sendu á loft flugskeyti í morgun eftir að fregnir …
Ísraelar sendu á loft flugskeyti í morgun eftir að fregnir bárust af árás Hesbollah.

Ríkismiðill í Líbanon segir að Ísraelar hafi skotið flugskeyti sem lenti innan hverfis í miðborg Beirútar.

Fyrr í morgun bárust fregnir af því að Hesbollah-liðar í Líbanon hefðu skotið um 20 flugskeytum á skotmörk við strandlínuna í Haifa í Ísrael. Einhver flugskotanna voru skotin niður samkvæmt yfirlýsingu frá ísraelska hernum. Ekki bárust fregnir af meiðslum hjá fólki í árásinni.

Heimildarmaður AFP í Líbanon segir að skotmarkið hafi verið skrifstofur stjórnmálasamtakanna Syrian Baath sem hefur ráðið ríkjum í Sýrlandi. Samtökin reka útibú í Líbanon.  

AFP segir frá

Fréttin hefur verið uppfærð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert