Xi Jinping, forseti Kína, lofaði á síðasta fundi sínum með Joe Biden, fráfarandi Bandaríkjaforseta, að vinna með Donald Trump eftir að Trump tekur við embætti. Þetta kom fram á blaðamannafundi eftir síðasta Jinpoing með núverandi forseta Bandaríkjanna, Joe Biden.
Leiðtogarnir hittist í gær eftir ársfund samstarfsfund á vettvangi APEC í Perú. Báðir lögðu leiðtogarnir áherslu á að minnka spennu í alþjóðavettvangi.
Sérfræðingar óttast óstöðugleika að samskiptum Bandaríkjanna og Kína eftir að Trump snýr aftur til valda en hann hefur lofað að hækka tolla á innflutning frá Kína.
Hefur Trump lofað allt að 60% toll á allar innflutning frá Kína. Þá hefur hann skipað í embætti í ríkisstjórn sinni fólk sem hefur áður tjáð sig um nauðsyn þess að tolla kínverskan innflutning.
Samskiptin þjóðanna versnuðu til muna þegar fyrrum forsetinn sagði Covid-19 veiruna „kínverskt veiruna“ á meðan á heimsfaraldrinum stóð.
„Kína er tilbúið að vinna með nýjum stjórnvöldum í Bandaríkjunum,“ segir Xi.
„Þjóðir okkar tvær mega ekki leyfa samkeppni þeirra á mili að leysa úr hendi í átök. Það er okkar ábyrgð og á síðustu fjórum árum tel ég að við höfum sannað að það er mögulegt að viðhalda góðu sambandi þjóðanna,“ segir Biden.