Rússar stoppi ekki nema þeir séu stöðvaðir

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir að gera verði allt sem …
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir að gera verði allt sem í okkar valdi stendur til að styðja Úkraínu. mbl.is/Ólafur Árdal

„Árásir Rússa á Úkraínu í gærkvöldi, þær alvarlegustu í marga mánuði, sýna að Rússar munu ekki stoppa fyrr en þeir eru stöðvaðir.“

Þetta skrifar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra í tísti á samfélagsmiðlinum X.

Réttlæti og varanlegur friður

Úkraínumenn þurftu að þola eina stærstu loftárás Rússa til þessa í nótt en Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir að 120 flugskeytum og 90 drónum hafi verið beitt. Úkraínuher hafi aftur á móti náð að skjóta flest skeytin niður.

„Við getum ekki leyft Rússlandi að komast upp með landvinningastríð sitt. Við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að styðja Úkraínu, siguráætlun þess og leit þeirra að réttlæti og varanlegum friði, sem á við alþjóðalög að styðjast.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert