Þekktur útvarpsmaður ákærður fyrir kynferðisbrot

Alan Jones á blaðamannafundi árið 2017.
Alan Jones á blaðamannafundi árið 2017. AFP/William West

Þekktur ástralskur útvarpsmaður, Alan Jones, hefur verið ákærður fyrir fjölda kynferðisbrota, að sögn lögreglunnar í landinu.

Rannsókn hefur staðið yfir á meintum brotum hans.

Jones, sem er 83 ára, er þekktur víðsvegar um Ástralíu fyrir spjallþætti sína í útvarpinu. Einnig þjálfaði hann á sínum tíma ástralska ruðningslandsliðið, skrifaði ræður fyrir forsætisráðherra landsins og kenndi við einn virtasta skóla Ástralíu.

Jones var handtekinn á heimili sínu í morgun á sama tíma og gerð var húsleit þar.

Sakaður um 24 brot

Hann er sakaður um 24 brot gegn átta meintum fórnarlömbum á árunum 2001 til 2019, að sögn lögreglunnar í Nýju Suður-Wales. Á meðal þeirra var fólk sem starfaði hjá honum.  Jones neitaði fyrri ásökunum á hendur sér sem birtust í blaðinu Sydney Morning Herald seint á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert