Finnar hefja rannsókn á sæstrengjum

Frá lagningu C-Lion1-sæstrengsins í október árið 2015.
Frá lagningu C-Lion1-sæstrengsins í október árið 2015. AFP

Rannsóknarlögreglan í Finnlandi hefur hafið rannsókn á skemmdum á tveimur sæstrengjum milli Finnlands og Þýskalands en talið er að skorið hafi verið á þá vísvitandi.

Í yfirlýsingu frá finnsku rannsóknarlögreglunni kemur fram að henni hafi borist beiðni um rannsókn frá fyrirtækinu Cinia Oy sem rekur sæstrenginn, sem nefnist C-Lion 1 og er um 1.200 kíló­metra lang­ur og er eina beina teng­ing Finn­lands við Mið-Evr­ópu. 

Þjóðverjar telja að skemmdirnar á sæstrengjunum í Eystrasalti hafi orðið af völdum skemmdarverka og í sameiginlegri yfirlýsingu frá utanríkisráðherrum Þýskalands og Finnlands segir að öryggi Evrópu eigi undir högg að sækja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert