Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, segist líta mjög alvarlegum augum rof tveggja sæstrengja í Eystrasalti.
„Við fylgjumst mjög náið með þessum aðstæðum,“ sagði utanríkisráðherrann í samtali við sjónvarpsstöðina TV 2 nú fyrir stundu.
„Við höfum orðið vitni að tveimur gagnatruflunum og það lítum við á sem afar alvarlegt mál og erum í nánu sambandi við viðkomandi lönd, en umfram það get ég ekki sagt meira.“
Troels Lund Poulsen, varaforsætisráðherra og varnarmálaráðherra Danmerkur, tók í sama streng á blaðamannafundi síðdegis samkvæmt umfjöllun Berlingske.
Vildi hann ekki gefa upp hvort dönsk stjórnvöld hefðu valdið því að kínverska skipið Yi Peng 3, sem talið er hafa átt þátt í rofi strengjanna, varpaði akkerum í miðju Kattegat þar sem það liggur enn.
Enn síður vildi hann svara því hvort danskir hermenn hefðu farið um borð í kínverska skipið.