Skutu langdrægri eldflaug í átt að Úkraínu

Slökkviliðsmenn að störfum í Dnípró í Úkraínu eftir loftárás Rússa …
Slökkviliðsmenn að störfum í Dnípró í Úkraínu eftir loftárás Rússa í morgun. AFP

Rússar skutu í morgun langdrægri eldflaug (e. ICBM) í átt að Úkraínu í fyrsta sinn, að sögn úkraínskra yfirvalda.

Um stigmögnun í stríðinu er að ræða en stutt er síðan Úkraínumenn skutu langdrægri eldflaug, sem Bandaríkjamenn útveguðu þeim, á Rússland.

Eldlaugin sem Rússar skutu í morgun hafði ekki að geyma kjarnaodd, að sögn heimildarmanns innan úkraínska flughersins.

Flugherinn sagði í tilkynningu að rússneskar hersveitir hefðu í morgun skotið þó nokkrum tegundum af eldflaugum í átt að borginni Dnípró þar sem skotmörkin voru mikilvægir innviðir.

„Sérstaklega ber að nefna að langdrægri eldflaug var skotið frá Astrakhan-héraði í Rússlandi,“ sagði í tilkynningunni.

Heimildarmaður í flughernum sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem Rússar hefðu frá innrásinni í Úkraínu notað slík vopn, sem geta hæft skotmörk í mörg þúsund kílómetra fjarlægð.

Pútín Rússlandsforseti.
Pútín Rússlandsforseti. AFP/Vyacheslav Prokofyev

Vildi ekkert tjá sig

Þegar Dmitrí Peskov, talsmaður Kremlar, var spurður á blaðamannafundi í morgun hvort Rússar hefðu skotið eldflauginni sagðist hann ekkert vilja tjá sig um málið.

Úkraínski flugherinn skaut niður sex eldflaugar Rússa en ekki kom fram í tilkynningu þeirra hvort langdræga eldflaugin hefði verið skotin niður.

Dmitrí Peskov, talsmaður Kremlar.
Dmitrí Peskov, talsmaður Kremlar. AFP/Maxim Shemetov

Vilja komast hjá kjarnorkudeilu 

Rússnesk stjórnvöld segjast vera að leggja eins mikið á sig og hægt er til að komast hjá kjarnorkudeilu.

„Við höfum lagt áherslu á það varðandi kjarnorkustefnu okkar að Rússland hagar sér af ábyrgð og leggur eins mikið á sig og hægt er til að leyfa ekki slíkri deilu að koma upp,“ sagði Peskov á blaðamannafundinum. 

Stutt er síðan Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seti und­ir­ritaði til­skip­un um víðtæk­ari heim­ild Rússa til að nota kjarn­orku­vopn. Litið var á þetta sem skýr skila­boð til Vest­ur­landa og Úkraínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert