Hundruð þúsunda Úkraínumanna eru án rafmagns eftir umfangsmiklar loftárásir Rússa á orkuinnviði í nótt.
„Eins og staðan er núna eru 523 þúsund notendur í Lviv-héraði án rafmagns,“ segir Maksym Koztskyi, embættismaður í héraðinu á samfélagsmiðli.
Úkraínsk yfirvöld segja að rafmagn hafi farið af hjá 280 þúsund manns í héraðinu Rivne í vesturhluta landsins og 215 þúsund til viðbótar í Volyn-héraði.