Tveir særðir eftir skotárás á Grænlandi

Frá Grænlandi.
Frá Grænlandi. AFP

Maður hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa staðið að baki skotárás í Tiniteqilaaq, sem er á austurströnd Grænlands.

Danska ríkisútvarpið, DR, greinir frá og vísar í tilkynningu frá grænlensku lögreglunni.

Tveir slösuðust í skotárásinni og er ekki vitað um líðan þeirra en lögreglunni barst tilkynning um skotárásina klukkan 6.42 að staðartíma í morgun.

Íbúar á svæðinu voru áður beðnir um að halda sig innandyra, slökkva ljósin og hylja gluggana en um 100 manns búa í Tiniteqilaaq.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert