Franska ríkisstjórnin fallin

Michel Barnier tók við sem forsætisráðherra í byrjun september. Í …
Michel Barnier tók við sem forsætisráðherra í byrjun september. Í dag, aðeins þremur mánuðum síðar, hefur honum verið bolað burt. AFP

Franska þjóðþingið samþykkti rétt í þessu að bola Michel Barnier forsætisráðherra úr embætti en hann hefur aðeins gegnt starfinu í þrjá mánuði.

Þetta er fyrsta sinn í 60 ár sem þjóðþingið samþykkir vantrauststillögu á hendur sitjandi ríkisstjórn.

Tillagan var lögð fram af vinstri flokkunum í þinginu en naut einnig stuðnings hinnar stóru Þjóðfylkingar, róttæks hægri flokks undir forystu Marine Le Pen sem situr í stjórnarandstöðu. 

Vantraustið var lagt fram á hendur Barnier eftir að hann nýtti sér grein 49.3 í stjórnarskrá Frakka til að þvinga fjárlög í gegnum þingið. 

Greinin gerir ríkisstjórninni heimilt að samþykkja frumvarp án viðkomu í þjóðþinginu, en skyldu þingmenn mótmæla því, sem þeir gerðu, þá geta þeir lagt fram vantrauststillögu á hendur ráðherranum. Verði hún samþykkt, sem hún var, eru lögin felld úr gildi og ráðherranum vikið úr embætti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert