Assad sagður halda sig í Moskvu

Bashar al-Assad og Vladimír Pútín Rússlandsforseti eru miklir bandamenn. Myndin …
Bashar al-Assad og Vladimír Pútín Rússlandsforseti eru miklir bandamenn. Myndin er frá ríkisheimsókn Assads til Rússlands 2015. AFP

Bash­ar al-Assad, for­seti Sýr­lands sem er sagður er hafa flúið frá Dam­askus eft­ir að upp­reisn­ar­menn lögðu höfuðborg­ina und­ir sig, er nú í Moskvu að sögn rúss­neskra rík­is­fjöl­miðla.

Breska rík­is­út­varpið hef­ur eft­ir miðlin­um að for­set­inn og fjöl­skylda hans hafi hlotið leyfi til hæl­is í Rússlandi. Breski miðill­inn kveðst þó ekki enn hafa náð að staðfesta fregn­irn­ar sjálf­ur.

Upp­reisn­ar­hóp­ur­inn Hayat Tahrir al-Sham náði í gær völd­um í Dam­askus og hef­ur hon­um því tek­ist að leggja tvær stærstu borg­ir Sýr­lands und­ir sig.

Í kjöl­farið lýsti hóp­ur­inn yfir að hann hefði steypt Assad af stóli. Þá sagði hóp­ur­inn að hann myndi frelsa ein­stak­linga sem hefðu verið rang­lega fang­elsaðir í Dam­askus.

Assad hef­ur verið við völd frá því faðir hans, Hafez-al Assad, lést árið 2000 en hann hafði gegnt for­seta­embætt­inu frá ár­inu 1971.

Hayat Tahrir al-Sham hef­ur boðað út­göngu­bann í Dam­askus í dag og fram á morg­un.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert