Skortur á Guinness yfirvofandi

Skortur er yfirvofandi á hinum dökka og seyðandi bjór, Guinness.
Skortur er yfirvofandi á hinum dökka og seyðandi bjór, Guinness. AFP/Brian Ach

Skortur á bjórnum Guinness er yfirvofandi í Bretlandi á sama tíma og eftirspurn er í hæstu hæðum.

Framleiðandi Guinness hefur þurft að grípa til takmarkana á útflutningi bjórsins til kráa í Bretlandi og það þrátt fyrir framleiðsla sé í hámarki.

Þá ber að spyrja hvað veldur þessari skyndilegri uppsveiflu í vinsældum drykks sem á rætur að rekja til Dyflinnar á Írlandi á 18. öld?

Drykkjuleikur og áhrifavaldar

Einfalda svarið er að framleiðandinn, Diageo, hefur unnið hart að markaðssetningu Guinness á meðal yngri kynslóða.

Áhrifavaldar á borð við Kim Kardashian og Oliviu Rodrigo hafa látið taka myndir af sér með drykkinn um hönd og leikur sem hefur það að markmiði að kljúfa G-ið (e. split the G) á Guinness-glasinu hefur náð miklum vinsældum.

Markmið leiksins er að ná að drekka fram að miðju bókstafsins G á glasinu í fyrsta sopa.

Herferð Diageo að ná til yngri kynslóðarinnar hefur sannarlega skilað sínu og þá einkum á meðal kynslóðarinnar sem kennd er við bókstafinn Z.

Skortur er yfirvofandi á krám í Bretlandi. Sama er ekki …
Skortur er yfirvofandi á krám í Bretlandi. Sama er ekki uppi á teningnum á Norður-Írlandi og ekki heldur í heimalandi Guinness, Írlandi. AFP/Sébastien Duval

Neysla rúmlega fimmfaldast

Talsmaður Diageo segir framleiðandann hafa hámarkað framboð sitt á drykknum en þau geti ekki mætt gríðarlega mikilli eftirspurn.

Vegna þessa hefur verið gripið til að takmarkana á útflutningi til kráa í Bretlandi.

Eftirspurnin eftir Guinness fer á skjön við heildareftirspurn eftir bjór en neysla á bjór hefur minnkað frá því í júlí.

Á sama tíma hefur neysla á Guinness á börum og krám rúmlega fimmfaldast.

Þó er ekki öll von úti í Bretlandi, að minnsta kosti ekki á Norður-Írlandi, en framleiðandinn sagði fréttastofu BBC að ekki væri að vænta skorts á Guinness á börum og krám þar. Þá er ekki heldur skortur á Írlandi.

Þannig gætu Bretar nýtt jólafríið í stutta ferð yfir Írlandshaf til þess að gæða sér á Guinness af dælu.  

BBC

BBC 2

CNN

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert