Úkraínumenn ætla að senda korn til Sýrlands til þess að reyna að koma í veg fyrir matarskort þar í landi.
Frá þessu greinir Volodimír Selenskí Úkraínuforseti á samfélagsmiðlinum X í dag.
Er þetta gert af mannúðar- og öryggisástæðum í þeirri von um að stuðla að stöðugleika, að sögn Selenskís.
„Fyrir Úkraínu er þetta mikilvægt: Því rólegra sem ástandið er á slíkum svæðum, því virkari getur heimurinn verið í að hjálpa okkur að ná friði.“
Segir hann þetta einmitt vera ástæðuna fyrir því að Rússar leggi mikið á sig að ýta undir átök víða um heim með því að kynda undir óstöðugleika á heimsvísu.
„Við hvetjum alla heimsbyggðina til að taka þátt í að koma á stöðugleika til að tryggja að stríðið – sem hófst í Sýrlandi fyrir rúmum áratug með þátttöku Írans og Rússlands – geti loks liðið undir lok.
Today, following reports from our government officials, we agreed on actions regarding Syria—primarily humanitarian and security efforts aimed at stabilization. For Ukraine, this is important: the calmer the situation in such regions, the more actively the world can help us…
— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) December 14, 2024