Úkraínumenn hafa sært eða drepið nokkur hundruð norðurkóreska hermenn sem berjast fyrir Rússland.
Þetta segir háttsettur embættismaður innan varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna í samtali við AFP-fréttaveituna undir nafnleynd.
Í gær sagði leyniþjónusta úkraínska hersins segir að úkraínskir hermenn hefðu drepið eða sært að minnsta kosti 30 norðurkóreska hermenn í Kúrsk-héraði.
Þúsundir hermanna frá Norður-Kóreu hafa bæst í hóp rússneska hermanna í stríðinu gegn Úkraínu, þar á meðal landamærasvæðinu í Kúrsk.
„Þetta eru ekki hermenn sem hafa verið hertir í bardaga. Þeir hafa ekki verið í stríðsátökum áður,“ sagði hann og bætti við að þetta væri líklega orsök þess að þeir hefðu orðið fyrir því mannfalli sem þeir hefðu orðið fyrir af hendi Úkraínumanna.
Ummæli embættismannsins um mannfallið koma í kjölfar þess að Oleksandr Sirskí, yfirmaður allra herja Úkraínu, sagði að Rússar hefðu beitt norðurkóreskum hermönnum í öflugri sókn í Kúrsk á undanförnum dögum.
Norður-Kóreumenn fengu eldflaugavarnarkerfi frá Rússum í skiptum fyrir hermenn í stríðinu gegn Úkraínu.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði í síðasta mánuði að 11.000 norðurkóreskir hermenn væru í Vestur-Kúrsk-héraði en Rússland og Norður-Kórea hafa eflt til muna hernaðartengsl sín eftir innrás Rússa í Úkraínu.