Olíumengunin teygir sig yfir 50 km langt svæði

Um 2.700 manns taka nú þátt í hreinsunarstarfinu.
Um 2.700 manns taka nú þátt í hreinsunarstarfinu. AFP

Rússnesk yfirvöld hafa útvíkkað hreinsunarstarf við Svartahaf en þar varð mikill olíuleki eftir að tvö olíuflutningaskip eyðilögðust í aftakaveðri. Mörg þúsund tonn af olíu láku í hafið og um 50 kílómetra löng strandlengja þarfnast hreinsunar.

Gamalt rússneskt tankskip brotnaði í tvennt og sökk í óveðrinu á sunnudag á meðan hitt strandaði í sundi sem tengir Asovshaf og Svarthaf, en það liggur á milli Krímskaga og Krasnodar-héraðs í suðurhluta Rússlands. Þar er að finna marga strandbæi.

Ráðuneyti almannavarna í Rússlandi segir að unnið sé að hreinsa upp strandlengjuna, sem nær frá strandbænum Anapa í norðri til hafnarborgarinnar Temryuk.

Olíunni er mokað með handafli upp í poka sem eru …
Olíunni er mokað með handafli upp í poka sem eru síðan fluttir annað. AFP

Um þriðjungur olíunnar lak í hafið

Um 9.000 tonn af olíu voru í skipunum og talið er að um þriðjungur olíunnar hafi lekið í hafið.

Gervihnattamyndir sýna að olía lekur enn úr skipinu sem sökk að sögn rússnesku fréttastofunnar TASS. Þá er mjög hvasst á svæðinu sem ýtir olíunni að strandsvæðum í suðri.

Í gær var lýst yfir neyðarástandi í bænum Anapa vegna atviksins, en þar búa um 90.000 manns.

Hátt í 3.000 manns við hreinsunarstörf

Nú taka um 2.700 manns þátt í hreinsuninni, bæði viðbragðsaðilar og aðrir sjálfboðaliðar. Fólkið mokar upp svartri olíu í plastpoka sem eru síðan fluttir á brott í flutningabílum.

Yfirvöld segja að nú þegar sé búið að fjarlægja um 80 tonn af olíu og búið sé að hreinsa um átta kílómetra langt svæði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert