Mannskæð árás átti sér stað í þýsku borginni Magdeburg í austurhluta Þýskalands í kvöld. Karlmaður ók bifreið inn í mannfjöldann á jólamarkaði í borginni.
Tveir létust í árásinni, þar af eitt barn. Talið er að 68 manns hafi slasast og þar af 15 alvarlega.
Árásarmaðurinn heitir Taleb A. og var hann handtekinn á staðnum. Að sögn þýska miðilsins Spiegel er Taleb geðlæknir frá Sádí Arabíu og er 50 ára að aldri.
Samkvæmt heimildum Spiegel hefur Taleb verið búsettur í Þýskalandi frá árinu 2006 en AFP-fréttaveitan greinir frá því að hann sé með varanlegt dvalarleyfi í landinu. Er hann sagður búa í borginni Bernburg, sem er um 50 kílómetrum frá Magdeburg.
Lögreglan greinir frá því að Taleb hafi ekið um 400 metra á ofsahraða í gegnum markaðinn. Hann er sagður hafa verið á svartri BMW-bifreið sem hann hafi verið með á leigu. Talið er nær öruggt að hann hafi verið einn á ferð.
Olaf Scholz Þýskalandskanslari mun halda til Magdeburg á morgun en hann birti færslu á X í kvöld þar sem hann sagði atburðinn hræðilegan og að hugur sinn væri hjá fórnarlömbunum og aðstandendum þeirra.
Í kjölfar árásarinnar myndaðist mikil ringulreið á staðnum. AFP-fréttaveitan greinir frá því að um 100 viðbragðsaðilar hafi kom á svæðið og blá ljós lýst upp vettvanginn.
Hlúðu viðbragðsaðilar að þeim særðu á götunni á meðan beðið var eftir flutningi á bráðamóttökur sjúkrahúsa, sem þurftu að búa sig undir að taka á móti fjölda særðra.
Árásin er sögð minna á árás herskárra Jasída 19. desember árið 2016 þegar maður frá Túnis ók vöruflutningabíl inn í mannfjölda á jólamarkaði í Berlín þar sem tólf manns létu lífið.
Nancy Feaser, innanríkisráðherra Þýskalands, hvatti fólk nýlega til þess að vera á varðbergi á jólamörkuðunum en sagði þó að yfirvöld hefðu ekki fengið neinar sérstakar hótanir.
Innanríkisþjónustan í landinu hefur sömuleiðis nýlega varað við því að jólamarkaðir séu „hugmyndafræðilega heppilegt skotmark fyrir þá sem aðhyllast íslamstrú.“