„Hér ríkir mikil sorg og reiði“

Fimm manns eru látnir og um 200 manns eru slasaðir.
Fimm manns eru látnir og um 200 manns eru slasaðir. AFP/Ralf Hirschberger

Íslenski læknirinn Henning Busk, sem starfar sem hjarta- og brjóstholsskurðlæknir við háskólasjúkrahúsið í Magdeburg í Þýskalandi, segir mikla sorg og reiði ríkja í borginni. 

Fimmtugur karlmaður frá Sadí-Arabíu ók bif­reið inn í mann­fjöld­a á jóla­markaði í borginni á föstudag. Fimm eru látnir og um 200 manns slösuðust. Að sögn Hennings eru einhverjir hinna slösuðu í lífshættu. 

„Hér ríkir mikil sorg og reiði,“ segir Henning í skriflegu svari til mbl.is.

Hann segir engan hafa getað ímyndað sér að svona árás yrði framin í þessari fámennu borg. „Allir þekkja einhvern sem fór illa í þessu,“ segir Henning.

Íbúar í Magdeburg syrgja hina látnu.
Íbúar í Magdeburg syrgja hina látnu. AFP/Ralf Hirschberger

Slökkt á flestum jólaljósum

Jólamarkaðurinn í Magdeburg er vinsæll meðal íbúa og ferðamanna sem heimsækja borgina um jólin. Að sögn Hennings er nú búið að slökkva á flestum jólaljósum og jólaskreytingum.

„Við eina kirkjuna hér kemur fólk til að biðja fyrir eða minnast þeirra sem dóu. Þetta er allt mjög sorglegt,“ segir Henning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert