Þorgerður: Hugur minn er hjá fórnarlömbum flugslyssins

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir seg­ir hug sinn vera hjá fórn­ar­lömb­um hörmu­lega flug­slyss­ins sem varð í Muan í Suður-Kór­eu í morg­un.

Aðeins tveir af þeim 181 sem voru um borð lifðu af flug­slysið þegar Boeing-vél Jeju Air brot­lenti á flug­braut­inni á alþjóðaflug­vell­in­um í Muan með þeim af­leiðing­um að vél­in nærri því gjör­eyðilagðist. Vél­in var á leið frá Taílandi.

„Það hrygg­ir mig að heyra af mann­skæða flug­slys­inu í Suður-Kór­eu. Hug­ur minn er hjá fórn­ar­lömb­un­um og fjöl­skyld­um þeirra,“ skrif­ar ut­an­rík­is­ráðherr­ann á sam­fé­lags­miðil­inn X.

Rann­sókn stend­ur yfir á til­drög­um slyss­ins en flugmaður­inn sem stjórnaði vél­inni sendi frá sér neyðarboð skömmu áður en vél­in brot­lenti. Rík­is­stjórn Suður-Kór­eu hef­ur lýst yfir sjö daga þjóðarsorg vegna slyss­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert
Loka