Kínversk stjórnvöld segja ásakanir Bandaríkjamanna um að tölvuþrjótum hafi tekist að brjótast inn fyrir varnir bandaríska fjármálaráðuneytisins „tilhæfulausar“.
Í bréfi ráðuneytisins til þingsins sagði að tölvuþrjótunum, sem eiga að hafa verið á vegum kínverskra stjórnvalda, hefði tekist að komast yfir skjöl í byrjun desember.
Kínverjar hafna ásökunum og segja að kínversk stjórnvöld hafi „alltaf verið á móti hvers kyns tölvuárásum, og væru enn frekar andvíg útbreiðslu rangra upplýsinga gegn Kína í pólitískum tilgangi“.
„Við höfum lýst afstöðu okkar margoft varðandi slíkar tilhæfulausar ásakanir sem skorta sannanir,“ sagði Mao Ning, talsmaður utanríkisráðuneytis Kína.