Svipti sig lífi fyrir sprenginguna

Matthew Allan Livelsberger tók sitt eigið líf og olli sprengingu …
Matthew Allan Livelsberger tók sitt eigið líf og olli sprengingu fyrir utan Trum-hótel í Las Vegas á nýársdag. ETHAN MILLER

Matthew Alan Livelsberger, sem olli sprengingu í Cybertruck-bifreið fyrir utan Trump-hótel í Las Vegas á nýársdag, féll fyrir eigin hendi rétt fyrir sprenginguna og hafa bréfaskrif hans fyrir sprenginguna veitt innsýn í líf hans. 

CNN greinir frá.

Áður hefur verið sagt frá því að Livelsberger sinnti herþjónustu í bandaríska hernum en var í leyfi frá störfum sínum þegar hann olli sprengingunni. Yfirvöld segja að Livelsberger hafi látist af völdum skotsárs á höfði.

Greindist með þunglyndi á síðasta ári

Samkvæmt miðlinum greindist Livelsberg með þunglyndi á síðasta ári. Þrátt fyrir það var hann ekki talinn hættulegur sjálfum sér eða öðrum. 

Lögregluyfirvöld hafa nú deilt með fjölmiðlum vestanhafs bréfum sem Livelsberger skrifaði dagana fyrir sprenginguna. Þar koma fram áhyggjur hans varðandi framtíð Bandaríkjanna og stefnu landsins, sem hann taldi vera á niðurleið.

Þrátt fyrir það kemur þó fram í bréfunum að hann var dyggur stuðningsmaður Donalds Trumps, verðandi Bandaríkjaforseta, og einnig var hann aðdáandi Elon Musk og Robert F. Kennedy Jr.

Ljósmynd sem var tekin fyrir utan hótelið.
Ljósmynd sem var tekin fyrir utan hótelið. ETHAN MILLER

Í bréfunum ritar Livelsberger einnig að hann þurfi að hreinsa hug sinn vegna þeirra lífa sem hann tók sem hermaður í bandaríska hernum.

Að sögn Spencer Evans, fulltrúa FBI í Las Vegas, er um að ræða hörmulegt sjálfsvíg hermanns sem glímdi við áfallastreituröskun og önnur vandamál.

Segir sprenginguna ekki hryðjuverk

Þá kemur einnig fram í bréfum Livelsberger að sprengingin væri ekki hryðjuverkaárás heldur vakning fyrir Bandaríkin. Hann ritar að Bandaríkjamenn veiti aðeins sjónarspili og ofbeldi athygli og þurfti því flugelda og sprengingu til að koma skoðunum hans á framfæri.

Í grein CNN er einnig rætt við fyrrum kollega Livelsberger úr hernum og er honum þar meðal annars lýst sem góðhjörtuðum manni sem sá til þess að börn í Afganistan fengju leikföng þegar hann sinnti herþjónustu þar.

Embætti land­lækn­is bend­ir á að mik­il­vægt sé að þeir sem glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir segi ein­hverj­um frá líðan sinni, hvort sem er aðstand­anda eða hafi sam­band við Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717, eða á net­spjalli 1717.is, við hjúkr­un­ar­fræðing í net­spjalli á heilsu­vera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta-sam­tak­anna s. 552-2218. Píeta-sam­tök­in bjóða einnig upp á ráðgjöf og stuðning fyr­ir aðstand­end­ur þeirra sem glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir.

Fyr­ir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi bend­ir land­læknisembættið á stuðning í sorg hjá Sorg­armiðstöðinni í síma 551-4141 og hjá Píeta-sam­tök­un­um í síma 552-2218.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert