„Hann er of veikur og hræddur“

Trudeau hefur verið forsætisráðherra síðan árið 2015. Ef gengið yrði …
Trudeau hefur verið forsætisráðherra síðan árið 2015. Ef gengið yrði til kosninga núna þá benda kannanir til þess að Poilievre (til hægri) myndi taka við því embætti. Samsett mynd/AFP/Dave Chan

Þó að Just­in Trudeau, for­sæt­is­ráðherra Kan­ada, hafi í gær tilkynnt að hann myndi segja af sér sem formaður Frjáls­lynda flokks­ins og sem for­sæt­is­ráðherra þá gæti vel verið að hann sinni báðum embættum í nokkra mánuði í viðbót.

BBC greinir frá. 

Hann mun stíga til hliðar eft­ir að flokk­ur­inn hef­ur valið sér nýj­an leiðtoga, en það gætu verið fáeinir mánuðir þar til formannskosningar fara fram innan Frjálslynda flokksins.

Vill að þing komi saman 24. mars

Í gær óskaði hann jafnframt eft­ir því að hlé yrði gert á þing­inu og að það kæmi aft­ur sam­an 24. mars.

Líklega mun flokkurinn þurfa að finna sér nýjan leiðtoga áður en þing kemur saman aftur.

Nýir demókratar hafi varið ríkisstjórn Frjálslyndra vantrausti en leiðtogi flokksins, Jagmeet Singh, sagði í gær að það skipti ekki máli hvort að það tæki nýr leiðtogi við hjá Frjálslynda flokknum, NDP myndi samþykkja vantraust.

„Þeir eiga ekki skilið annað tækifæri,“ sagði hann.

Íhaldsflokkurinn vinsælastur 

Næstu þingkosningar verða að fara fram í Kanada eigi síðar en í október. Líklegt er að kosið verði áður en það gerist ef og þegar vantrauststillaga verður samþykkt á þinginu í vor.

Ef kosið yrði núna benda kannanir til þess að Íhaldsflokkurinn undir stjórn Pierre Poilievre myndi vinna stórsigur og fá stóran meirihluta á þinginu.

Sam­kvæmt könn­un­um þá nýt­ur Frjáls­lyndi flokk­ur­inn aðeins um 23% fylg­is á sama tíma og Íhalds­flokk­ur­inn mæl­ist með um 43% fylgi.

„Justin Trudeau segist vera „baráttumaður“. Af hverju ekki að nýta lögbundinn rétt hans til að boða til kosninga núna og mæta mér? Af því að hann er of veikur og hræddur. Þjóðin er því komin í þrot með veikburða forsætisráðherra á meðan Frjálslyndir berjast um völd sín á milli,“ skrifar Poilievre á X.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert