„Eitthvað sem enginn ætti að þurfa að upplifa“

Hús við Palisades ströndina í ljósum logum.
Hús við Palisades ströndina í ljósum logum. AFP

„Að sitja með fjölskyldu minni og horfa í beinni útsendingu í sjónvarpi heimili okkar í Malibu brenna til grunna er eitthvað sem enginn ætti að þurfa að upplifa.“

Þetta segir raunveruleikastjarnan Paris Hilton í færslu á samfélagsmiðlinum X. „Hjarta mitt er meira niðurbrotið en ég get lýst með orðum,“ skrifar hún.

Fjölmargar stjörnur Hollywood, leikarar, tónlistamenn og aðrir frægir einstaklingar eru á meðal tugþúsunda sem hafa orðið fyrir barðinu á mannskæðum gróðureldum í Los Angeles síðustu tvo sólarhringa en talið er að 1.500 hús og byggingar hafi orðið eldunum að bráð og um 130 þúsund íbúum í Kaliforníu hefur verið gert að rýma hús sín.

Hundruð heimila eyðilögðust á hinu glæsilega Pacific Palisades-svæði, uppáhaldsstað fræga fólksins, þar sem hús eru metin á milljónir dollara.

Í það minnsta fimm eru látnir í gróðureldunum.
Í það minnsta fimm eru látnir í gróðureldunum. AFP

Emmy-verðlaunaleikarinn James Woods birti myndband á X sem sýnir eldtungur gleypa tré og runna nálægt Pacific Palisades heimili hans í Pacific Palisades þegar hann bjó sig til að rýma hús sitt.

„Ég trúði ekki að yndislega litla heimilið okkar í hæðunum héldi svona lengi. Það er eins og að missa ástvin,“ skrifar Woods.

Emmy-verðlaunaleikarinn Billy Crystal segir að Pacific Palisades-húsið sem hann og eiginkona hans bjuggu í í 46 ár hafi brunnið í gær.

„Orð geta ekki lýst því hversu gríðarlega eyðileggingin sem við erum að verða vitni að og upplifum,“ segir Crystal í yfirlýsingu sem hann sendi tímaritinu People.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert