Forsætisráðherra Belgíu hvetur Evrópu til að „halda kúlinu“ gagnvart umdeildum yfirlýsingum Donald Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna, í aðdraganda endurkomu hans í Hvíta húsið.
AFP-fréttastofan greinir frá.
„Eitt af því sem við lærðum í fyrra skiptið hans í embætti, var að við ættum ekki að bregðast við öllu sem hann segir,“ sagði Alexander De Croo, forsætisráðherra Belgíu, á blaðamannafundi í dag, en hann lætur fljótlega af embætti sjálfur.
„Það er ýmislegt sagt í þeim tilgangi að skapa umræður, sem leiðir á endanum ekki til mikils,“ sagði Croo jafnframt.
Trump, sem tekur formlega við völdum 20. janúar, olli töluverðu fjaðrafoki þegar hann sagði á þriðjudag að hann myndi ekki útiloka þann möguleika að beita hervaldi til þess að ná Grænlandi og Panamaskurðinum undir yfirráð Bandaríkjanna. Hafa ráðamenn víða í Evrópu brugðist við ummælunum.
Þá hefur Mette Frederikssen, forsætisráðherra Danmerkur, kallað formenn dönsku flokkanna á sinn fund meðal annars til að ræða ummæli Trump. En Grænland er sem kunnugt er sjálfsstjórnarsvæði sem heyrir undir Danmörku.
Croo virðist þó ekki telja að mikil alvara sé að baki orðum Trump og segir mikilvægt að halda ró sinni.
„Við ættum ekki að bregðast við í hvert sinn sem hann reynir að skapa ágreining, þá gerðum við það á hverjum degi.“