Búast við 400 milljónum gesta

Búist er við álíka mörgum á hátíðina og búa í …
Búist er við álíka mörgum á hátíðina og búa í Bandaríkjunum og Kanada samanlagt. AFP/Niharika Kulkarni

Gífurlegur fjöldi pílagríma af hindúatrú hefur safnast saman á Indlandi til þess að baða sig í heilögu vatni á Kumbh Mela-hátíðinni. Skipuleggjendur búast við 400 milljónum gesta.

Kumbh Mela-hátíðin er hald­in á bökk­um Ganges-fljóts og er það trú hind­úa að þeir geti þvegið af sér synd­ir sín­ar með því að baða sig í vatni ár­inn­ar.

Hátíðin hefst í dag og stendur til 26. febrúar. Hún er haldin á tólf ára fresti og er búist við að hátíðin í ár verði stærsta trúarsamkoma mannkynssögunnar.

Árbakkinn í Prayagraj er þakinn hafi tjalda.
Árbakkinn í Prayagraj er þakinn hafi tjalda. AFP/R. Satish Babu

150.000 salerni smíðuð

„Um 350 til 400 milljónir manna munu heimsækja hátíðina, þannig að þú getur ímyndað þér umfang undirbúningsins,“ segir Vivek Chaturvedi, talsmaður hátíðarinnar, fyrir opnunina.

Um 150.000 salerni hafa verið smíðuð fyrir hátíðina og fjöldi samfélagseldhúsa þar sem 50.000 manns geta borðað í senn.

AFP/Niharika Kulkarni
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert