Sex létust í eldsvoða á veitingastað

Sex létust.
Sex létust. Ljósmynd/Tékkneska slökkviliðið

Sex létust og átta slösuðust í eldsvoða á veitingastað í borginni Most í norðvesturhluta Tékklands í gær.

Borgin er í um 70 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Prag. Þeir sem slösuðust voru fluttir á spítala, en sex eru alvarlega slasaðir.

Eldurinn kviknaði um klukkan 21 að staðartíma í gær. Málið er nú í rannsókn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert