„Brottvísunarmiðar“ fyrir útlendinga vekja úlfúð

Alice Weidel er annar formaður AFD og kanslaraefni flokksins.
Alice Weidel er annar formaður AFD og kanslaraefni flokksins. AFP/Jens Schlueter

Þjóðernisflokkurinn AFD dreifir nú einblöðungum í þýsku borginni Karlsruhe sem eru eins og flugmiðar í laginu en á þeim stendur að þetta séu brottvísunarmiðar fyrir ólöglega innflytjendur.  Þýska lögreglan rannsakar gjörninginn.

Á einblöðungnum stendur „brottvísunarmiði“ og þar kemur fram nafn farþegans sem er „ólöglegur innflytjandi“ og áfangastaðurinn sem er „öruggt upprunaland“. Brottfarardagur er merktur 23. febrúar, eða þegar Þjóðverjar ganga til þingkosninga.

Á einblöðungnum eru einnig kosningaloforð AFD um að leyfa útlendingum ekki að nýta velferðarþjónustu og að stöðva „íslamvæðingu“ Þýskalands.

Flokkurinn með yfir 20% fylgi

Nokkrir hælisleitendur hafa látið vita af því á samfélagsmiðlum að þeir hafi fengið einblöðungana undanfarna daga, en AfD hafnar því að flokkurinn sendi þá sérstaklega til útlendinga.

Talsmaður lögreglunnar í Karlsruhe sagði í samtali við AFP-fréttastofuna að rannsókn væri hafin á því hvort að um væri að ræða mögulega „hvatningu til haturs“.

AfD í Karlsruhe hefur sagt í yfirlýsingu að einblöðungunum hafi verið dreift í borginni „í eins miklum mæli og mögulegt er” og að boðskapurinn og dreifingin sé að fullu í samræmi við lög.

Samkvæmt könnunum þá er AFD með stuðning 21% Þjóðverja og mælist flokkurinn aðeins á eftir Kristilegum demókrötum, sem mælast með 31% fylgi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert