Sakfelling hefði beðið Trumps

Jack Smith saksóknari, sem útnefndur var til að vinna skýrslu …
Jack Smith saksóknari, sem útnefndur var til að vinna skýrslu um málatilbúnaðinn gegn Trump í kosningasvikamálinu frá 2020, kveður hann hafa hlotið dóm hefði hann ekki náð kjöri í nóvember. AFP/Saul Loeb/Mandel Ngan

Donald Trump, sem í næstu viku sest á ný í forsetastól Hvíta hússins í Washington, hefði hlotið dóm fyrir tilraunir sínar til að hafa áhrif á niðurstöður forsetakosninganna árið 2020 hefði hann ekki náð kjöri í nýafstöðnum kosningum.

Þetta er niðurstaða skýrslu rannsakandans sértilnefnda í málinu, Jack Smith, sem um langt árabil hefur starfað við bandaríska dómsmálaráðuneytið, hvort tveggja sem saksóknari og aðstoðarsaksóknari.

Kjör dragi ekki úr alvarleika brota

Segir Smith í skýrslu sinni að það viðhorf dómsmálaráðuneytisins að ótækt sé að halda uppi saksókn og málarekstri gegn kjörnum forseta dragi ekki úr alvarleika þeirra brota sem Trump séu borin á brýn, gildi sönnunargagna hins opinbera eða málatilbúnaði ákæruvaldsins sem skýrsluhöfundur standi fullkomlega við.

Eykur Smith þeim orðum svo við í skýrslunni, að áður en til kjörs Trumps á nýjan leik hafi komið hafi rannsókn hans þegar leitt til þeirrar niðurstöðu að sönnunargögn gegn forsetanum fyrrverandi og verðandi væru yfrið næg til að knýja fram sakfellingu við málaferli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert