Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kveðst fullviss að vopnahlé milli Ísrael og Hamas-hryðjuverkasamtakanna muni hefjast á sunnudag eins og stefnt hefur verið að.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, frestaði fyrr í dag atkvæðagreiðslu í þinginu um vopnahléssamninginn við Hamas.
Ísraelsk yfirvöld saka Hamas um að standa ekki við sínar skuldbindingar en í samkomulaginu felst að Hamas láti yfir 30 gísla úr haldi.
Blinken segir hann og aðra embættismenn í ríkisstjórn Joe Bidens, forseta Bandaríkjanna, hafa reynt að leysa vandamál tengd ákvörðuninni um vopnahléið í gegnum sáttasemjara Katar í gær.
„Það kemur ekki á óvart að í því ferli sem fylgir samningaviðræðum, sem hafa verið svona krefjandi og þungar, losni endi. Við erum að binda um þennan lausa enda í þessum töluðu orðum,“ sagði Blinken á blaðamannafundi í dag.