Ísraelski hægriflokkurinn Otzma Yehudit tilkynnti í dag að hann ætli að hætta í ríkisstjórn.
Breska ríkisútvarpið greinir frá.
Ráðherrar flokksins Itamar Ben-Gvir, Yitzhak Wasserlauf og Amichai Eliyahu lögðu fram uppsagnarbréf sín í morgun.
Ríkisstjórn Benjamíns Netanjahús er hins vegar enn með þingmeirihluta, en hann er naumur.
Ben-Gvir, sem hefur gegnt embætti öryggismálaráðherra, hefur mótmælt vopnahléssamkomulagi milli Ísraels og Hamas-samtakanna. Hann vill að Ísraelar haldi hernaðaraðgerðum sínum gegn Hamas á Gasa áfram. Í bréfi sem hann sendi Netanjahú í dag segir hann vopnahléssamninginn „algjöran sigur fyrir hryðjuverk“.