Vopnahlé tekur gildi

Vopnahléið átti að taka gildi klukk­an 6.30 í morg­un.
Vopnahléið átti að taka gildi klukk­an 6.30 í morg­un. AFP/Bashar Taleb

Vopna­hlé milli Ísra­els og Ham­as hófst klukkan 9.15 að íslenskum tíma.

Vopnahléið átti að taka gildi klukk­an 6.30 í morg­un, en Benja­mín Net­anja­hú, for­sæt­is­ráðherra Ísra­els, frestaði því vegna þess að Ham­as-sam­tök­in höfðu ekki birt nöfn þeirra gísla sem sleppa á úr haldi síðar í dag. 

Hamas-samtökin birtu listann á níunda tímanum í morgun.

Ungum konum sleppt úr haldi

Í fyrsta áfanga vopna­hlés­ins verður 33 gísl­um sleppt úr haldi. Í færslu á Tel­egram segja Ham­as-sam­tök­in að þrem­ur kon­um verði sleppt fyrst. Þær heita Romi Gon­en, Em­ily Dam­ari og Doron Stein­brecher. 

Doron Stein­brecher er 31 árs dýra­lækn­ir. Hún var í íbúð sinni í Kfar Aza þegar Ham­as-liðar rudd­ust inn og tóku hana í gísl­ingu. 

Romi Gon­en er 24 ára. Hún var á úti­hátíðinni Supernova þegar Ham­as-liðar tóku hana.

Em­ily Dam­ari er 28 ára. Hún var stödd í Kfar Aza þegar hún var tek­in í gísl­ingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka