Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir að vopnahléi á Gasa hafi verið frestað þar til Hamas-samtökin gefa út lista yfir þá gísla sem samtökin ætla að leysa úr haldi.
Vopnahléið átti að taka gildi klukkan 6.30 í morgun.
Breska ríkisútvarpið greinir frá.
Samkvæmt vopnahléssamkomulaginu eiga Hamas-samtökin að gefa út lista yfir nöfn þeirra gísla sem leysa á úr haldi síðar í dag. Í staðinn sleppa Ísraelar palestínskum föngum úr haldi.
Nafnalistinn átti að birtast að minnsta kosti sólarhringi fyrir fyrirhuguð skipti. Hamas segir seinkunina vera vegna „tæknilegra ástæðna“.